Íslenska hljóðvistarfélagið var stofnað árið 2006 og tilgangur félagsins er að tengja saman fólk sem vinnur við hljóðhönnun og hljóðvist á Íslandi. Markmiðið er að auka og breiða út þekkingu á því fagsviði. Félagið starfar innan VFÍ sem faghópur um hljóðhönnun.
Félagsmenn eru nú yfir 30 talsins og sérhver einstaklingur sem hefur áhuga á hljóðhönnun og hljóðvist getur orðið meðlimur í félaginu. Einnig geta félög, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á að efla starfsemi félagsins orðið styrktarmeðlimir.
íshljóð
facebook hópur